Til að byrja með

Í fyrsta skipti sem að klukkan er notuð þá þarf að tengjast henni með snjallsíma til að stilla tímann og tengingu við þráðlausa netið á staðnum. Það er til þess að hún stilli sig til að geta sagt réttan tíma. Fylgdu þessum skrefum til að stilla hana:

  1. Settu klukkuna í samband.
  2. Opnaðu stillingar í símanum þínum, veldu WiFi tengingar. Finndu nýtt þráðlaust net sem að er merkt TalandiKlukka. Smelltu á það og skráðu inn notenda nafn og aðgangsorð: Notandi: admin, Aðgangsorð: 12345678
  3. Þegar þú ert tengdur þá ertu sendur beint á síðu þar sem að er hægt að stilla klukkuna, velja rödd, stilla styrk og tengja við þráðlaust net á staðnum.
  4. Þegar þú ert búinn að tengja klukkuna við netið á staðnum þá sækir hún tíma og dagsetningu sjálfvirkt.
  5. Þegar þú ertu búinn að velja það sem að þú vilt þá getur þú ýtt á takkann og þá segir hún hvað klukkan er.
  6. Ef þú ýtir í 2 sekúndur þá segir hún dagsetninguna.
  7. Ef þý ýtir í 10 sekúndur þá ferðu inn í stillingar eins og hægt er að gera í símanum.